Sameining líftækni og orkuvinnslu
Prokatín ehf er
líftæknifyrirtæki með orkulíftækni
sem sérsvið og stefnir að því að
nýta staðarkosti Íslands og hina miklu möguleika
sem felast á þessu sviði. Prokatín er
sprotafyrirtæki sem stundar rannsóknir og
þróun með það markmið að nýta
örverur í iðnaðarskyni. Prokatín og
móðurfélagið Arkea hf búa yfir mikilli
þekkingu og reynslu í
líftæknirannsóknum og rekstri
hátæknifyrirtækja. Prokatín stefnir að
því að vera leiðandi í sameiningu
líftækni og orkutækni.

Umhverfisvæn framleiðsla
Rannsóknir Prokatíns
felast í þróun á framleiðslu
prótína með
vetnisnýtandi örverum. Áhersla er lögð
á nýtingu vetnis og
brennisteinsvetnis í aflofti frá jarðhitaorkuverum
Íslands sem
orkugjafa í framleiðsluferlinu. Með þessari
tækni verður hægt að
framleiða hágæða prótínmjöl
í dýrafóður og minnka losun
óæskilegra
lofttegunda í andrúmsloftið. Prokatín stefnir
að því að mæta aukinni
eftirspurn á fóðurprótínum með
hagkvæmri og umhverfisvænni framleiðslu.

|

|
|

|
|