Bakgrunnur
Prokatín ehf var stofnað í kringum rannsóknir á ákveðnu sviði sem áður fóru fram á vegum líftæknifyrirtækisins Prokaria í samstarfi við Háskólann á Akureyri og Verkfræðistofuna VGK-Hönnun. Þessar rannsóknir hafa verið styrktar af ýmsum sjóðum (Tækniþróunarsjóður, Átak til atvinnusköpunnar, Líftækninet) og byggja á áralöngum rannsóknir hérlendis á hitakærum örverum. Rannsóknirnar beinast að sérhæfðum örverum sem geta nýtt sér vetni og brennisteinsvetni sem orkugjafa og binda koldíoxið til myndunar á lífmassa. Hagnýting þessar rannsókna er margþætt. Hægt er að þróa ódýrt og vistvænt framleiðsluferli til framleiðslu á prótínmjöli sem hægt er að nota líkt og fiskimjöl í fóður en vaxandi eftirspurn er eftir mjöli af slíku tagi. Einnig er hægt að nota slíkt kerfi til framleiðslu á verðmætari lífrænum afurðum svo sem ensímum og lífrænu plasti. Kerfið getur nýtt sér gastegundir í aflofti frá jarðvarmavirkjunum Íslands og minnkar losun óæskilegra lofttegunda í andrúmsloftið.
image


Staðarkostir
Prokatín starfar á sviði orkulíftækni sem fellur vel að framtíðar orkunýtingu. Mikið magn er af vetni í aflofti jarðvarmavirkjana og hægt er að koma upp framleiðslueiningum í tengslum við þær virkjanir. Framleiðslukerfi fyrir örverur nýtast til að hreinsa útblástur þeirra og hægt er einnig að nýta gufu sem til staðar er í framleiðsluferlinu. Hér skapast nýir möguleikar á nýtingu vetnis í framtíða vetnissamfélagi. Innlendur markaður er fyrir hendi fyrir prótínmjöl og verð á slíkri afurð fer hækkandi. Hagkvæmismat á framtíða verksmiðjueiningum sýnir góða arðsemi miðað við núverandi markaðsverð.
image


Framtíðaráform
Rannsóknirnar hafa verið fjármagnaðar af eigin fé og styrkjum en gert er ráð fyrir að leita eftir frekari styrkjum og unnið er að því að auka hlutafé Prókatín ehf. Samningur hefur verið gerður við Orkuveitu Reykjavíkur og uppbygging á tilraunaaðstöðu á Nesjavöllum er hafin. Þar er unnið að þróun á ræktunarkerfi örvera með jarðgufugasi. Hannað verður framleiðslukerfi fyrir framtíða verksmiðju. Gert er ráð fyrir að ljúka rannsóknum, hönnun og frekara hagkvæmismati á tveimur árum. Þegar niðurstöður liggja fyrir verður ráðist í uppsetningu verksmiðju og mjölframleiðslu.
image
Hafið samband vegna frekari upplýsinga


image
image
image

image

image